Friday, July 31, 2009

væa .ap er dimmt ´æti

það er eitthvað magnað við það að geta sest niður og skrifað eins og maður vill það sem maður vill. Til þess að svo megi verða þarf maður að hafa tækin og tólin eins og lyklaborð, penna eða fjöður...einu sinni hafði maðurinn bara fjöður og blek..þar áður stein??....frelsi er annar nauðsynlegur hlutur, ef þú hefur ekki frelsi til aðtjá þig óheft þá kemur ekki frá þér sannleikur heldur það sem þú heldur að megi segja og skrifa, ritskoðað efni...
um leið held ég að það sé nauðsynlegt hverjum manni að vita að einhver óskrifuð velsæmismörk liggja í hverju samfélagi, hverri sál og það ber að virða í ræðu, riti og gjörðum.

Þetta er ljúffengt pikkstuð að nóttu til. Það er verslunarmannahelgi og það þýðir að daginn styttir, núna er myrkur þar sem áður var bjart...þýðir ekki endilega að eitthvað hafi versnað...merkir frekar nýjan öðruvísi tíma þar sem myrkrið fer með völdin og faðmar þig :)

Góða nótt í blámanum...

Tuesday, July 28, 2009

af sumri og sundlaugum

ég fór í sumarfrí um daginn, tíu daga ferðalag, engin tölva, engin pólitík, enginn fundur...aaaahhh...tvöfalt ef ekki fjórfalt aaaaaaaaaaaaaaaahhhhhhhhhhhhhhh.....síðan ég kom aftur hef ég hugsað margt og náð að halda zeninu hreinu og tæru...falleg orka innst í kjarnanum, umm da það er sko gott. Einhver sjaldgæf innri ró svona eins og virkilega góð mandarína í desember eða dýrindis 70% súkkulaðibita dýft ofaní svart kaffi eða allt þetta samanlagt :)

Nú finnst mér aðeins eins og sumarið sé að fara að kveðja, kominn haustfílingur í magann en samt ekki áður en ég fer í eina afslöppunarheimsókn í grímsnesið rauða. Svona er verslunarmannahelgin hjá montana fjölskyldunni, róleg heimsókn í sveitina með túninu, rólunum og rauða arninum. Engin útihátíð kannski en örugglega hátíð samt.

Fer í eina sæta veislu um helgina þar sem saman verða komnar nokkrar yndilsegar, háværar og frábærar konur, jamm eins og þegar ég var 22, nema aðeins minna drukkið og enginn mætir íþví í vinnurútuna snemma morguns, allir siðprúðir og góðir en frábærir engu að síður.....

Ég hef aldrei farið á þjóðhátíð í eyjum og ef guð og lukkan leyfa þá héld ég að ég teymi fjölskylduna á þjóðhátíð eitthvert árið. hljómar vel að fara með 10, 12 og 14 ára gemlinga..svo það erkomið framtíðarplan fyrir verslunarmannahelgina árið 2017...aaaaa, framtíðarfóbía, örlítil ógleðistilfinning, það ár verð ég 38 ára og það verður pottþétt geggjað :=)

Og þá að sundlaugum.....
fór í þær ansi margar í fríinu og yfirleitt nokkuð ánægð með reynsluna að undanskilinni sundferð í borgarneslaug á laugardegi í steikjandi hita og mannmergð...það var ekki bara það að maður rækist með puttana í tærnar á næsta manni heldur líka bara það að árurnar rákust allar saman ef þið skiljið hvað ég meina...Ég var alveg að fríka út oní potti þar sem varla var hægt að setjast niður og allsstaðar var fólk....

komst líka að því að verðlagið er nokkuð misjafnt og ég átti erfitt með að tengja saman rökin fyrir því að það kostaði sums staðar 250 og annarsstaðar 500...var tilbúin að borga 500 í úthlíð þó ekki nema bara fyrir útsýnið en það var öðruvísi á kleppjárnsreykjum...samt grét ég ekki rauða seðilinn því hvað er yndilsegra en að fara í heita, hreina útilaug, teygja úr sér, kafa og fylgjast með frábærum framförum sundgarpanna...

synir mínir voru ekki lengi að vinsældarraða laugunum og þá var fjöldi rennibrauta helsti kosturinn..uppáhaldslaugin: á Hellu enda heimasveitin okkar.
Við létum ekki af sundáráttunni þegar við komum heim...höfum tekið uppá kvöldsundi í heimasundlauginni að loknum kvöldmat...ljúft

Þá er það komið. Lifið heil þar til næst....


Wednesday, June 24, 2009







..

Þá er þetta blogg orðið til, í huganum á það sér framtíð..blómstrandi vors og fagurra blóma...en í raun veit ég ekki hvernig það lítur út...það verður spennandi að sjá.
Ég sé mig líka fyrir mér að velja look og kustomisa síðuna...rauður eða kannski leyniliturinn, fjólublár.
Lyklaborðið geymir komandi orð og sögur af gömlu og nýju fólki, hlutum sem eru og voru. Eins og flugeldarnir fyrir utan gluggann, ef mér skjátlast ekki er verið að sprengja flugelda, kannski af því það er jónsmessa. hef ekki tekið eftir dögg á grasinu enn þá en það kemur í ljós...góða nótt í birtunni..