Nú finnst mér aðeins eins og sumarið sé að fara að kveðja, kominn haustfílingur í magann en samt ekki áður en ég fer í eina afslöppunarheimsókn í grímsnesið rauða. Svona er verslunarmannahelgin hjá montana fjölskyldunni, róleg heimsókn í sveitina með túninu, rólunum og rauða arninum. Engin útihátíð kannski en örugglega hátíð samt.
Fer í eina sæta veislu um helgina þar sem saman verða komnar nokkrar yndilsegar, háværar og frábærar konur, jamm eins og þegar ég var 22, nema aðeins minna drukkið og enginn mætir íþví í vinnurútuna snemma morguns, allir siðprúðir og góðir en frábærir engu að síður.....
Ég hef aldrei farið á þjóðhátíð í eyjum og ef guð og lukkan leyfa þá héld ég að ég teymi fjölskylduna á þjóðhátíð eitthvert árið. hljómar vel að fara með 10, 12 og 14 ára gemlinga..svo það erkomið framtíðarplan fyrir verslunarmannahelgina árið 2017...aaaaa, framtíðarfóbía, örlítil ógleðistilfinning, það ár verð ég 38 ára og það verður pottþétt geggjað :=)
Og þá að sundlaugum.....
fór í þær ansi margar í fríinu og yfirleitt nokkuð ánægð með reynsluna að undanskilinni sundferð í borgarneslaug á laugardegi í steikjandi hita og mannmergð...það var ekki bara það að maður rækist með puttana í tærnar á næsta manni heldur líka bara það að árurnar rákust allar saman ef þið skiljið hvað ég meina...Ég var alveg að fríka út oní potti þar sem varla var hægt að setjast niður og allsstaðar var fólk....
komst líka að því að verðlagið er nokkuð misjafnt og ég átti erfitt með að tengja saman rökin fyrir því að það kostaði sums staðar 250 og annarsstaðar 500...var tilbúin að borga 500 í úthlíð þó ekki nema bara fyrir útsýnið en það var öðruvísi á kleppjárnsreykjum...samt grét ég ekki rauða seðilinn því hvað er yndilsegra en að fara í heita, hreina útilaug, teygja úr sér, kafa og fylgjast með frábærum framförum sundgarpanna...
synir mínir voru ekki lengi að vinsældarraða laugunum og þá var fjöldi rennibrauta helsti kosturinn..uppáhaldslaugin: á Hellu enda heimasveitin okkar.
Þá er það komið. Lifið heil þar til næst....

En fallegt og gaman. Mæli með að The Montanas fái sér búning fyrir þjóðhátíð. Allir í stíl og jafnvel merktir nöfnunum... Til hamingju með fríið og ég hlakka til að hittast og njóta nærverunnar. Gleði og friður frá ak.
ReplyDeleteég sé fyrir mer fjólubláan jogginggalla með gulum/karrígulum lit inní...muhaha :)
ReplyDeletehahahah...hittumst bráðum pantipant..
ReplyDelete