það er eitthvað magnað við það að geta sest niður og skrifað eins og maður vill það sem maður vill. Til þess að svo megi verða þarf maður að hafa tækin og tólin eins og lyklaborð, penna eða fjöður...einu sinni hafði maðurinn bara fjöður og blek..þar áður stein??....frelsi er annar nauðsynlegur hlutur, ef þú hefur ekki frelsi til aðtjá þig óheft þá kemur ekki frá þér sannleikur heldur það sem þú heldur að megi segja og skrifa, ritskoðað efni...
um leið held ég að það sé nauðsynlegt hverjum manni að vita að einhver óskrifuð velsæmismörk liggja í hverju samfélagi, hverri sál og það ber að virða í ræðu, riti og gjörðum.
Þetta er ljúffengt pikkstuð að nóttu til. Það er verslunarmannahelgi og það þýðir að daginn styttir, núna er myrkur þar sem áður var bjart...þýðir ekki endilega að eitthvað hafi versnað...merkir frekar nýjan öðruvísi tíma þar sem myrkrið fer með völdin og faðmar þig :)
Góða nótt í blámanum...
Friday, July 31, 2009
Subscribe to:
Post Comments (Atom)

takk fyrir kveðjuna mín kæra.
ReplyDeleteHlakka til haustfagnaðar. Allt það besta til ykkar. Gleði og friður. ak
b logga blogga blogg a...
ReplyDelete...hei ástarkona góða besta....gaman er að vita af þér hér...svona ef ske kynni að önnur hvor okkar skildi leysast uppúr sambandi við raunveruleikann og jörð....ég hlakka til að borða jólakonfekt...
ReplyDelete